top of page

Skilmálar

Nauðsynlegt að glöggva sig á.

SÖLU- OG SENDINGAR SKILMÁLAR

Afgreiðsla á vörum:
Við kappkostum að koma vöru eins fljótt frá okkur og mögulegt er. Í sumum tilvikum tekst það samdægurs eða daginn eftir. I örfáum tilfellum getur það tekið lengri tíma. Sé vara pöntuð á föstudegi þurfum við í flestum tilvikum að bíða til mánudagsmorguns til að koma henni í póst. Pantanir eru ekki afgreiddar af lager nema eftir hádegi á virkum dögum.

Það getur komið fyrir í einstaka tilfellum að vara sé ekki til á lager. Í slíkum tilfellum munum við hafa samband og benda á aðra sambærilega vöru og/eða tilgreina afgreiðslufrest sé pantaður hlutur væntanlegur á lager okkar. - Jafnframt munum við bjóðast til að fella pöntun niður og endurgreiða hana, hafi hún verið greidd á vefsvæðu okkar.

Vara er ekki send frá okkur fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu t.d. millifærslu á reikning okkar eða á annan hátt er viðunandi má telja. Ef vara er enn ógreidd eftir 2 vikur fellur pöntunin sjálfkrafa niður. Þetta gildir ekki um þá sem eru í reikning hjá Slikkerí.

Fyrir þá sem kjósa að sækja pöntun þá höfum við samband og finnum tíma sem báðum aðilum hentar. 

Greiðslur:
Allar greiðslur fara fram á öruggan hátt, með millifærslu eða kortaþjónustu Korta/Rapyd svo kreditkortanúmer og viðkvæmar upplýsingar eru hvergi aðgengileg á síðum Slikkerís.

Millifærsla í banka/heimabanka:
Einfalt er að millifæra í banka eða heimabanka. Reikningur okkar: 0338-26-004608 kennitala: 460808-0220

Afhending:
Vörur sem sendar eru með Íslandspósti greiðir kaupandi sendingarkostnað vegna Pakkasendingu við móttöku. Reikna má út verð hér. 

Trúnaður:
Við hjá Slikkeri.is gætum trúnaðar við viðskiptavini og ábyrgjumst að láta ekki frá okkur upplýsingar til þriðja aðila er varða vörukaup, fyrirspurnir, lykilorð, netfang eða annað er varðar viðskipti þín við okkur.

bottom of page